Styrkleikarnir

Styrkleikarnir

Share

Krabbameinsfélag Íslands hefur gengið til liðs við Global Relay for Life, alþjóðlegan viðburð sem fer fram árlega í meira en 30 löndum. Íslenska nafn viðburðarins er Styrkleikarnir.

03/04/2026

✨Megið þið hafa það sem allra best yfir páskana 🐣 Hér er smá páskaglaðningur til þín frá okkur í Krabbameinsfélaginu 👉

▪️Í Vel­líð­un­ar­horn­inu er að finna ýmislegt eflandi og fræðandi, þar finnur þú skemmtilegar hugmyndir að hreyfingu sem bæði er hægt að iðka heima eða úti, fjölbreyttar upptökur með leiddri slökun og margt fleira. Við hvetjum ykkur til að skoða og nýta (https://www.krabb.is/krabbamein/lif-med-og-eftir-krabbamein/vellidunarhornid).

▪️ Á matarvefnum Gott og einfalt er að finna fjölbreyttar uppskriftir til að nýta um páskana. Uppskriftirnar taka mið af ráðleggingum um mataræði. Vefurinn er samstarfsverkefni Krabbameinsfélagsins og SÍBS.

17/10/2025

✨Allt að verða klárt fyrir Ljósastundina frábær mæting leggjum af stað kl.20🫶

16/10/2025

100 Úlfarsfellstindar og Bleika slaufan endurtaka leika og standa fyrir Styrkleikum í Bleikum október. Fyrsta ferðin verður farinn kl. 16:00, föstudaginn, 17. október og seinasta hópferðin verður kl. 15:00 laugardaginn 18. október. Hvetjum alla til að taka þátt á sínum forsendum, ganga eina ferð eða fleiri allt eftir því hvað hentar hverjum og einum.

Þegar rökkvar fer á föstudag verður haldin ljósastund, sem margir þátttakendur hafa lýst að snerti hjartastrengina á einstakan hátt. Lagt verður af stað frá bílastæðinu klukkan 20:00 og á toppnum verður kveikt á kertum sem þátttakendur geta keypt til stuðnings Krabbameinsfélaginu.

Við hvetjum öll til að koma klædd eftir veðri, í góðum skóm, með fullhlaðna síma og muna eftir höfuðljósi (vasaljósi) þegar fer að dimma.

Sjáumst á Úlfarsfelli!

Fróðleikur um Styrkleikana: https://www.krabb.is/styrkleikarnir

Kjartan Long

Want your organization to be the top-listed Non Profit Organization in Selfoss?
Click here to claim your Sponsored Listing.

Telephone

Address


Selfossvelli
Selfoss
800