Villingaholtskirkja
Hátíðarmessunni sem vera átti á morgun, annan í páskum kl. 11.00 er aflýst, vegna slæmrar veðurspár
26/03/2026
Villingaholtskirkja
Hátíðarmessa á annan páskadag kl. 11:00. Kirkjukórinn syngur, kantor Pétur Nói Stefánsson, prestur Axel Árnason Njarðvík.
28/11/2025
Kæru vinir, kveikt hefur verið á leiðislýsingunni í Villingaholtskirkjugarði. Það er góður og fallegur siður að tendra ljós á leiði ástvinar á aðventu. Óskað er eftir að greitt sé fyrir lýsinguna, 2.500 kr pr kross, greiða má inn á reikning kirkjugarðsins 0152-15-381326 kt; 510489-1799. Sóknarnefndin
13/10/2025
Sunnudaginn 12. október var þjóðbúningamessa í Villingaholtskirkju. Hún var vel sótt og góð stund í kirkjunni sem og í messukaffinu í Þjórsárveri á eftir og eru öllum sem undirbjuggu það þakkað kærlega fyrir. Í messunni færði Kirkjukórinn Guðmundi Eiríkssyni þakkir fyrir góð störf með kórnum og fyrir kirkjuna en hann hefur látið af störfum og Pétur Nói Stefánsson tekið við. Á einni af myndunum með þessari færslu má sjá þrjá fyrrum organista Villingaholtskirkju ásamt núverandi, það eru Ólafur Sigurjónsson, Ingi Heiðmar Jónsson, Guðmundur Eiríksson og Pétur Nói Stefánsson. Í messunni var þess einnig getið að kirkjan hefur fengið að gjöf bekk sem búið er að koma fyrir í kirkjugarðinum. Það var fjölskylda Eydísar Lilju Eiríksdóttur sem gaf kirkjunni bekkinn í minningu hennar en hún söng um árabil með kirkjukórnum og vann af heilum hug fyrir kirkjuna. Voru þeim fyrir hönd sóknarnefndar og sóknarinnar færðar þakkir. Góður dagur í kirkjunni okkar.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Website
Address
Flóahreppur
Selfoss
803