Samfylkingin á Akranesi
Kjósum Samfylkinguna 16. maí🌹
Lifandi bær🌹
Kjósum Samfylkinguna 16. maí!
15/05/2026
Kristinn Hallur Sveinsson skipar 3. sæti á framboðslista Samfylkingarinnar á Akranesi 🌹
Kristinn Hallur er 53 ára og er giftur Margréti Rós Jósefsdóttur. Saman eiga þau þrjá syni, Svein Loga, Almar Daða og Dag Kára, sem eru á aldrinum 18-27 ára. Kristinn Hallur hefur búið á Akranesi frá níu ára aldri fyrir utan háskólaárin í Reykjavík. Grunnskólaganga hans var í Brekkubæjarskóla og hann er stúdent frá FVA.
Hann er menntaður landfræðingur BSc. frá Háskóla Íslands og hefur einnig lokið kennsluréttindum á framhalds- og grunnskólastigi frá Háskólanum á Akureyri. Hann starfar hjá Loftmyndum ehf. þar sem hann vinnur við landupplýsingar, kortagerð, merkjalýsingar og sölu.
Kristinn Hallur hefur tekið virkan þátt í bæjarmálum á Akranesi frá árinu 2014. Hann hóf þá störf í bæjarstjórn sem varabæjarfulltrúi og sat m.a. í stjórn Byggðasafnsins og í skóla- og frístundaráði.
Hann var kjörinn varabæjarfulltrúi 2018, en tók sæti sem aðalmaður ári síðar. Á þeim tíma sat hann í umhverfis- og skipulagsráði um skeið og gegndi formennsku í velferðar- og mannréttindaráði.
Árið 2022 var Kristinn Hallur kjörinn bæjarfulltrúi og hefur frá þeim tíma sinnt því starfi af ábyrgð og dugnaði. Hann hélt áfram formennsku í velferðar- og mannréttindaráði og hefur jafnframt gegnt formennsku í Heilbrigðisnefnd Vesturlands á þessu kjörtímabili.
Hann hefur mikla og persónulega reynslu af málefnum fatlaðs fólks, en yngsti sonur þeirra hjóna er með mikla fötlun vegna genagalla. Sú reynsla hefur veitt honum dýrmæta innsýn í mikilvægi öflugrar þjónustu og réttláts samfélags.
Helstu baráttumál Kristins Halls hafa snúist um að verja og bæta þjónustu við fatlað fólk og aldraða, að umhverfi, götur og stígar nýtist öllum og að tryggja fjölbreytt húsnæði sem henti ólíkum hópum bæjarbúa.
Reynsla hans úr atvinnulífi og bæjarmálum nýtist vel við ákvarðanatöku um skipulag, uppbyggingu og þróun bæjarins.
Þegar tími gefst nýtur Kristinn Hallur þess að ferðast, taka ljósmyndir, hlusta á tónlist, fylgjast með fótbolta og NFL og ekki síst að verja tíma með fjölskyldu og góðum vinum.
Kristinn Hallur leggur áherslu á sterka samfélagsinnviði, góða þjónustu og ábyrga uppbyggingu í þágu almennings. Hann vill áfram vinna að því að Akranes sé öflugt og aðlaðandi samfélag þar sem allir fái tækifæri við sitt hæfi til að njóta sín.
Click here to claim your Sponsored Listing.
Category
Contact the organization
Website
Address
Stillholt 16-18
Akranes
300
Opening Hours
| Monday | 17:00 - 19:00 |
| Tuesday | 17:00 - 22:00 |
| Wednesday | 17:00 - 19:00 |
| Thursday | 17:00 - 19:00 |
| Friday | 15:00 - 22:00 |
| Saturday | 10:00 - 22:00 |