VIGT

VIGT

Share

VIGT er samstarf okkar, móður og þriggja dætra, sem með ólíka menntun og reynslu höfum sameinað krafta okkar við hönnun og framleiðslu ýmissa innanhússmuna. Sameiginlegur áhugi okkar kemur til eftir að hafa lifað og hrærst í heimi innréttinga- og mannvirkjagerðar en allar höfum við starfað hjá fjölskyldufyrirtækinu, Grindin ehf, sem hefur frá árinu 1979 byggt fjölda húsnæða og innréttað. Við framl

16/09/2025

Borð sem setur sterkan svip á rýmið hvort sem það stendur eitt eða tvö saman. Sófaborðið er úr náttúrusteininum travertine og olíuborinni eik. Neðri hillan býður upp á hagnýtt pláss fyrir bækur, körfur eða látlausa hluti.

Borðið fæst í tveimur stærðum, þriðja stærðin væntanleg.

Photos from VIGT's post 12/03/2025

Þegar við þurftum að yfirgefa eigur okkar og jafnvel reikna með að þær gætu horfið undir hraun, vöknuðu spurningar um vægi hluta. Við vorum heil á húfi – var þá efnislegt gildi yfirhöfuð mikilvægt? Hvernig gætum við haldið áfram að skapa þegar við sjálfar vorum óvissar um mikilvægi efnislegra hluta?

Með tímanum fundum við hversu mikið hlutir skipta máli. Við þráðum að hafa þá hjá okkur – ekki bara vegna notagildis þeirra, heldur vegna þess að þeir gera heimilið hlýlegt og persónulegt. Þeir tengja okkur við minningar, upplifanir og það hver við erum.

Það var góð tilfinning að finna tilganginn og ástríðuna á ný. Við höldum áfram að gera það sem við elskum – að hanna og skapa húsgögn og fylgihluti sem veita heimilum hlýju og karakter.

Photos from VIGT's post 23/10/2024

Hilla.

Gegnheill viður. Brúnbæsuð eða svört.
Fæst í stærðum 120cm og 160cm.

Telephone

Opening Hours

Thursday 13:00 - 17:00
Friday 13:00 - 17:00
Saturday 12:00 - 15:00